1. Þjónusta og gildissvið
1.1. Lykill fjármögnun (Lykill) er útibú Kviku banka hf. (Kvika) og því hluti af samstæðu Kviku banka hf. Eftir því sem við á gilda almennir skilmálar vegna viðskipta við Kviku banka hf. einnig um notkun á þjónustuvef Lykils, en skilmálar þessir ganga þó framar ef í milli ber varðandi notkun vefsins.
1.2. Þjónustuvefur Lykils („Mínar síður“ eða „vefurinn“) veitir viðskiptavinum aðgang að upplýsingum um lán og leigusamninga, ásamt möguleika á sjálfsafgreiðslu, s.s. að sækja um nýja fjármögnun og stýra aðgangsstillingum.
1.3. Lykill áskilur sér rétt til að ákvarða einhliða þá þjónustu sem vefurinn veitir á hverjum tíma og rjúfa aðgang að upplýsingum fyrirvaralaust ef þörf krefur vegna uppfærslu eða viðhalds kerfa.
2. Auðkenning og öryggi
2.1. Innskráning á vefinn fer fram með rafrænum skilríkjum. Viðskiptavinur ber fulla ábyrgð á öllum aðgerðum sem framkvæmdar eru á vefnum undir hans auðkenningu.
2.2. Viðskiptavinur skal tryggja að rafræn skilríki hans og tilheyrandi lykilorð séu ekki aðgengileg óviðkomandi aðilum.
2.3. Sé viðskiptavinur lögaðili, eða veiti hann öðrum aðila umboð til að nota vefinn fyrir sína hönd, ber viðskiptavinur sjálfur áhættu af allri notkun og færslum þeirra aðila sem hann veitir slíkan aðgang eða umboð.
3. Rafrænt samþykki
3.1. Með samþykki skilmála þessara samþykkir notandi að staðfesting aðgerða á vefnum með rafrænum skilríkjum (t.d. við lánsumsóknir eða breytingar á stillingum) jafngildi skriflegu samþykki notanda gagnvart Lykli fyrir þeirri tilteknu aðgerð eða þjónustu, þótt endanleg samningsgögn kunni að krefjast aðskilinnar undirritunar síðar í ferlinu.
4. Búnaður, tenging og vöfrun
4.1. Notandi leggur sjálfur til endabúnað, internettengingu og þann hugbúnað sem nauðsynlegur er til að nota vefinn.
4.2. Notandi ber fulla ábyrgð á að nota ávallt uppfærða og studda útgáfu af vafra, stýrikerfi og vélbúnaði. Notandi ber sjálfur fulla ábyrgð á þeirri aðferð og þeim búnaði sem hann kýs að nota til viðskipta á vefnum, þar á meðal að nota ávallt þá útgáfu af vafra (e. browser) og stýrikerfi sem studdur er af framleiðanda hverju sinni.
5. Framsetning gagna og útreikningar til viðmiðunar
5.1. Upplýsingar sem birtast á vefnum, þ.m.t. staða lána, hreyfingar og greiðsluáætlanir, eru sóttar í undirliggjandi kerfi Lykils. Vegna tafa á neti, álags eða gagnaskyndiminnis (e. caching) geta tölur sem birtast verið tímabundið úreltar.
5.2. Til að auðvelda sjálfsafgreiðslu framkvæmir vefurinn ýmsa útreikninga beint í viðmóti (t.d. samlagningar á lánasöfnum og útreikning á hámarkslánstíma). Allir slíkir útreikningar, samtölur og framsetning á vöxtum eru eingöngu til viðmiðunar og geta falið í sér námundunarvillur eða misræmi við endanlegt uppgjör.
5.3. Upplýsingar og útreikningar sem birtast á vefnum fela ekki í sér bindandi tilboð eða samning af hálfu Lykils, og ber Lykill ekki ábyrgð á tjóni sem kann að rekjast til ónákvæmni gagna sem þar birtast.
6. Fyrirvarar og takmörkun ábyrgðar
6.1. Lykill ber ekki ábyrgð á því tjóni sem kann að orsakast beint eða óbeint vegna galla eða bilunar í tengingu við internetið, netvöfrum, eða af öðrum þeim orsökum sem valda því að kerfið virkar ekki sem skyldi, s.s. vegna tæknibilana eða truflana í rekstri tölvukerfa.
6.2. Lykill ber aðeins ábyrgð á tjóni viðskiptavinar ef rekja má tjónið til ásetnings eða stórkostlegs gáleysis starfsmanna Lykils.
7. Persónuvernd og gagnasöfnun
7.1. Við notkun á vefnum safnar Lykill og vinnur persónuupplýsingar um notendur í samræmi við lög um persónuvernd og gildandi persónuverndarstefnu Kviku sem er aðgengileg á heimasíðu fyrirtækisins.
7.2. Vefurinn notast við hugbúnað þriðja aðila (s.s. til greininga á notkun og villuvöktunar) í þeim tilgangi að bæta þjónustu og tryggja öryggi. Notkun á þessum tólum og söfnun vafrakaka (e. cookies) er háð sérstöku samþykki notanda í gegnum kökustillingar vefsins á hverjum tíma.
8. Lokaákvæði
8.1. Lykill áskilur sér rétt til þess að fella þessa skilmála úr gildi, bæta við þá eða breyta hvenær sem er. Slíkar breytingar taka þegar gildi við birtingu nýrra skilmála á vefsvæði Lykils.
8.2. Um skilmála þessa gilda íslensk lög. Rísi mál vegna túlkunar þeirra eða framkvæmdar má reka það fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
8.3. Komi upp ágreiningur á milli notanda og Lykils um notkun vefsins eða einstaka þætti í framkvæmd skilmála þessara er notanda unnt að skjóta ágreiningi til Úrskurðarnefndar um viðskipti við fjármálafyrirtæki, sbr. nánar í almennum skilmálum vegna viðskipta við Kviku.
Með því að skrá sig inn á þjónustuvef Lykils staðfestir notandi að hann hafi kynnt sér skilmála þessa og samþykki þá að öllu leyti.