Græn lán

Lykill býður upp á svokölluð græn lán sem eru hagstæðari fyrir þau sem hyggjast kaupa sér bíl sem gengur fyrir endurnýjanlegri orku. Það gildir annars vegar um rafmagns- og vetnisbíla sem ganga fyrir 100% endurnýjanlegri orku og hins vegar um tengiltvinnbíla með mengunarstuðul undir 50 g CO2/km.

• 50% afsláttur er veittur af lántökugjöldum og 0,2% afsláttur af vöxtum í tilfelli rafmagns- og vetnisbíla sem ganga fyrir 100% endurnýjanlegri orku.

• 50% afsláttur er veittur af lántökugjöldum fyrir tengiltvinnbíla með mengunarstuðul undir 50 g CO2/km.