Aftur heim
17. okt, 2025
Vaxtalækkun 17. okt

Frá og með deginum í dag, 17. október 2025, munum við lækka vexti í tveimur flokkum af nýjum Lykillánum og -samningum.

Í flokknum 50% og lægra af kaupverði lækkum við vextina um 0,10% stig og fara þeir því úr 10,20% í 10,10%. Þá lækkum við um 0,70% stig í flokknum yfir 80% til 90% af kaupverði og fara vextirnir því úr 12,65% í 11,95%.

Óverðtryggðir breytilegir vextir á nýjum Lykillánum og Lykilsamningum sem taka gildi í dag verða því eftirfarandi:

  • Fjármögnunarhlutfall 50% og lægra af kaupverði - 10,10%
  • Fjármögnunarhlutfall >50% til 70% af kaupverði - 10,95%
  • Fjármögnunarhlutfall >70% til 80% af kaupverði - 11,20%
  • Fjármögnunarhlutfall >80% til 90% af kaupverði - 11,95%

Við viljum minna á að þeir sem eru að kaupa 100% rafmagnsbíl fá 50% afslátt af lántökugjöldum og 0,60% stiga afslátt af vöxtum frá gildandi gjaldskrá. Þeir sem kaupa tengiltvinnbíla sem menga 50g CO2 eða minna fá allt að 1,0% stiga afslátt af lántökugjöldum.


Óverðtryggðir breytilegir vextir á nýjum Lykillánum og -samningum fyrir 100% rafmagnsbíla sem taka gildi í dag verða því eftirfarandi:

  • Fjármögnunarhlutfall 50% og lægra af kaupverði - 9,50%
  • Fjármögnunarhlutfall >50% til 70% af kaupverði - 10,35%
  • Fjármögnunarhlutfall >70% til 80% af kaupverði - 10,60%
  • Fjármögnunarhlutfall >80% til 90% af kaupverði - 11,35%