Aftur heim
19. mar, 2026
Vaxtahækkun 19. mars

Frá og með deginum í dag, 19. mars 2026, munum við hækka vexti af nýjum

Lykillánum og Lykilsamningum um 0,25% stig. Er þessi ákvörðun tekin í kjölfar stýrivaxtahækkunar Seðlabanka Íslands frá því í gær. 

Óverðtryggðir breytilegir vextir á nýjum Lykillánum og -samningum sem taka gildi í dag verða því eftirfarandi:

  • Fjármögnunarhlutfall 50% og lægra af kaupverði - 10,10%
  • Fjármögnunarhlutfall >50% til 70% af kaupverði - 10,95%
  • Fjármögnunarhlutfall >70% til 80% af kaupverði - 11,20%
  • Fjármögnunarhlutfall >80% til 90% af kaupverði - 11,95%

Við viljum minna á að þeir sem eru að kaupa 100% rafmagnsbíl fá 50% afslátt af lántökugjöldum og 0,60% stiga afslátt af vöxtum frá gildandi gjaldskrá. Þeir sem kaupa tengiltvinnbíla sem menga 50g CO2 eða minna fá allt að 1,0% stiga afslátt af lántökugjöldum.

Óverðtryggðir breytilegir vextir á nýjum Lykillánum og -samningum fyrir 100% rafmagnsbíla sem taka gildi í dag verða því eftirfarandi:

  • Fjármögnunarhlutfall 50% og lægra af kaupverði - 9,50%
  • Fjármögnunarhlutfall >50% til 70% af kaupverði - 10,35%
  • Fjármögnunarhlutfall >70% til 80% af kaupverði - 10,60%
  • Fjármögnunarhlutfall >80% til 90% af kaupverði - 11,35%