Aftur heim
21. maí, 2026
Vaxtahækkun 21. maí

Frá og með deginum í dag, 21 maí 2026, munum við hækka vexti af nýjum

Lykillánum og Lykilsamningum um 0,25% stig. Er þessi ákvörðun tekin í kjölfar stýrivaxtahækkunar Seðlabanka Íslands frá því í gær. 


Óverðtryggðir breytilegir vextir á nýjum Lykillánum og -samningum sem taka gildi í dag verða því eftirfarandi:

  • Fjármögnunarhlutfall 50% og lægra af kaupverði - 10,35%
  • Fjármögnunarhlutfall >50% til 70% af kaupverði - 11,20%
  • Fjármögnunarhlutfall >70% til 80% af kaupverði - 11,45%
  • Fjármögnunarhlutfall >80% til 90% af kaupverði - 12,20%

Við viljum minna á að þeir sem eru að kaupa 100% rafmagnsbíl fá 50% afslátt af lántökugjöldum og höfum við aukið afsláttinn af Grænum lánum í 0,70% stiga afslátt af vöxtum frá gildandi gjaldskrá. Þeir sem kaupa tengiltvinnbíla sem menga 50g CO2 eða minna fá allt að 1,0% stiga afslátt af lántökugjöldum.


Óverðtryggðir breytilegir vextir á nýjum Lykillánum og -samningum fyrir 100% rafmagnsbíla sem taka gildi í dag verða því eftirfarandi:

  • Fjármögnunarhlutfall 50% og lægra af kaupverði - 9,65%
  • Fjármögnunarhlutfall >50% til 70% af kaupverði - 10,50%
  • Fjármögnunarhlutfall >70% til 80% af kaupverði - 10,75%
  • Fjármögnunarhlutfall >80% til 90% af kaupverði - 11,50%