Aftur heim
1. júl, 2022
Vaxtabreyting hjá Lykli

Frá og með deginum í dag, 1. júlí 2022, munu óverðtryggðir breytilegir vextir nýrra Lykillána og Lykilsamninga hækka. Er þessi ákvörðun tekin í kjölfar stýrivaxtahækkunar Seðlabanka Íslands í júní.

Óverðtryggðir breytilegir vextir á nýjum Lykillánum og Lykilsamningum sem taka gildi í dag, 1. júlí 2022, verða því eftirfarandi:

Fjármögnunarhlutfall 50% og lægra af kaupverði ....................7,50%

Fjármögnunarhlutfall >50% til 70% af kaupverði ......................8,20%

Fjármögnunarhlutfall >70% til 80% af kaupverði ......................8,50%

Fjármögnunarhlutfall >80% til 90% af kaupverði ......................9,90%