Aftur heim
3. des, 2021
Vaxtabreyting hjá Lykli

Frá og með deginum í dag, 3. desember 2021, munu óverðtryggðir breytilegir vextir nýrra Lykillána og Lykilsamninga hækka. Er þessi ákvörðun tekin í kjölfar stýrivaxtahækkunar Seðlabanka Íslands í október.

Óverðtryggðir breytilegir vextir á nýjum Lykillánum og Lykilsamningum sem taka gildi í dag, 3. desember 2021, verða því eftirfarandi:

Fjármögnunarhlutfall hærra en 81% af kaupverði .....................7,40%

Fjármögnunarhlutfall 61- 80% af kaupverði ...............................6,20%

Fjármögnunarhlutfall 51- 60% af kaupverði ...............................5,90%

Fjármögnunarhlutfall 50% eða lægra af kaupverði ..................5,15%