Aftur heim
20. maí, 2025
Er ekki kominn tími á uppfærslu? Ný auglýsing

Við vorum að frumsýna nýjustu auglýsingu sína, þar sem fjallað er á léttan en áleitan hátt um það samband sem margir eiga við bílinn sinn – samband sem byggir á vananum, þolinmæði... og stundum smá sjálfsblekkingu.

Í auglýsingunni fáum við að sjá hversu erfitt það getur verið að sleppa takinu á bíl sem maður hefur elskað – þrátt fyrir alla galla hans. En svo kemur augnablikið þegar þú sérð það skýrt: Það er kominn tími á uppfærslu.

Auglýsingin markar upphaf sumarsins hjá Lykli og heldur áfram þeirri hefð sem myndaðist síðustu ár þar sem gamansamar, persónulegar sögur endurspegla raunveruleg vandamál fólks í leit að réttu lausninni og réttum bíl.

Með auglýsingunni viljum við minna á að stundum er besta skrefið einfalt: að uppfæra.
Það er ekki flóknara en það.

🎬 Sjáðu auglýsinguna hér: 👉 Horfa á auglýsinguna