Lykillán
Lykillán er einfalt og þægilegt skuldabréfaform fyrir fjármögnun bifreiða eða skráningarskyldra tækja.
Allt að 90% fjármögnun til einstaklinga
Með Lykilláni átt þú kost á allt að 90% fjármögnun. Að uppfylltum lánsskilyrðum semur þú um kaupverð á bifreið og greiðir 10% út. Lykill greiðir afganginn. Lágmarksútborgun fyrirtækja er 20% af kaupverði nýrrar bifreiðar og þar með á fyrirtækið kost á allt að 80% fjármögnun kynntu þér fjámögnun fyrirtækja nánar hér.
Allt að 7 ára lánstími á nýjum og nýlegum bílum
Lántaki getur valið hvaða lánstíma sem er svo lengi sem það er innan marka um aldur bifreiða. Lánstími nýrra og nýlegra bifreiða getur verið allt að 7 ár en samanlagður aldur notaðrar bifreiðar og lánstími getur að hámarki verið 12 ár.
Lán fyrir nýja bíla
Lykill býður lykillán til einstaklinga upp að 90% af kaupverði til allt að 7 ára fyrir nýja bíla.
Lán fyrir notaða bíla
Lykill býður lykillán til að kaupa notaðan bíl. Reglurnar eru einfaldar þú getur fengið allt að:
- 90% lán í allt að 5 ár og samanlagður aldur bílsins og lánstími að hámarki 9 ár
- 80% lán í allt að 7 ár og samanlagður aldur bílsins og lánstími að hámarki 12 ár
Lán fyrir önnur skráningarskyld tæki
Þú getur fengið fjármögnun á önnur skráningarskyld tæki fyrir allt að 75% af kaupverði. Lánstími annarra skráningarskyldra tækja getur verið allt að 5 ár en samanlagður aldur og lánstími getur að hámarki verið 10 ár. Önnur skráningarskyld tæki sem hægt er að fjármagna með Lykilláni geta verið mótorhjól, fjórhjól, snjósleðar, húsbílar, hjólhýsi og aðrir ferðavagnar.
Lykillán er óverðtryggt
Lykillán er óverðtryggt með breytilegum vöxtum í samræmi við gjaldskrá Lykils á hverjum tíma og taka breytingar mið af almennum vaxtabreytingum á millibankamarkaði á Íslandi. Lykillán er með jöfnum greiðslum (annuitet) sem þýðir að greiðslubyrðin er jöfnuð yfir lánstímann.
Lántaki er skráður eigandi – veð í bílnum
Lántaki er skráður eigandi bifreiðar á lánstímanum en til tryggingar er tekið veð á 1. veðrétti í bifreiðinni/tækinu.
Borga Lykillánið hraðar niður
Lántaki getur borgað Lykillánið hraðar niður. Til að lækka vaxtakostnað er góð leið að greiða inn á lán. Hægt er að greiða aukalega inn á Lykillán eða greiða það upp hvenær sem er á lánstíma án nokkurs uppgreiðslugjalds.
Reiknivél fyrir Lykillán
Þú getur reiknað út lán miðað við mismunandi forsendur og séð greiðslubyrði með því að smella hér á reiknvél.