Lykill býður upp á bæði skjóta og góða þjónustu og hagstæð kjör á bílalánum. Það er lykillinn að nýja bílnum þínum.
Mánaðargreiðsla
Vextir
Höfuðstóll láns
Fjármögnunarhlutfall
Hjá Lykli getur þú fengið bílalán fyrir allt að 90% af kaupverði bílsins og lánstíminn getur verið allt að sjö ár.
Þú getur greitt inn á lánið hvenær sem er og greiðir ekkert uppgreiðslugjald. Þannig getur þú auðveldlega lækkað vaxtakostnað.
Lykill býður ekki aðeins fjármögnun á bílum heldur einnig á öðrum ökutækjum, svo sem hjólhýsum, húsbílum, fjórhjólum, mótorhjólum og vélsleðum.
Lánið er óverðtryggt með breytilegum vöxtum. Það er með jöfnum greiðslum sem þýðir að greiðslubyrðin helst óbreytt ef vextir breytast ekki.
Þú getur tryggt bílinn hjá hvaða tryggingafélagi sem þú vilt á Íslandi. Bíllinn þarf að vera bæði ábyrgðar- og kaskótryggður yfir lánstímann.
Þú þarft að gangast undir greiðslumat ef lánsfjárhæðin að viðbættum lántökukostnaði er hærri en 3.170.520 eða ef hún er hærri en 6.341.040 fyrir hjón eða par í sambúð. Í öllum tilfellum þarf lánshæfismat að eiga sér stað.
Samanlagður aldur notaðs bíls og lánstími getur að hámarki verið 12 ár þegar um 90% lán er að ræða og allt að 20 ár þegar lánshlutfall er allt að 80%.
Lánshlutfall getur verið allt að 80% og lánstími allt að sjö ár fyrir ferðavagna, svo sem húsbíla, hjólhýsi og tjaldvagna, að því tilskildu að samanlagður aldur ferðavagns og lánstími fari ekki yfir 20 ár. Ferðavagnar sem eru tíu ára eða eldri geta að hámarki fengið lán til fimm ára, enda fari samanlagður aldur ferðavagns og lánstími ekki yfir 20 ár.

Þú finnur rétta bílinn hjá bílasala.

Bílasalinn sendir inn lánsumsókn fyrir þig.

Lykill fer yfir lánsumsóknina og útbýr samning.

Þú undirritar samninginn og eignast bílinn!
Á mínum síðum sérðu yfirlit yfir öll þín mál og getur fylgst nákvæmlega með láninu þínu.