Áreiðanleikakönnun einstaklinga

Mikilvægur liður í starfsemi Lykils fjármögnunar er að þekkja viðskiptavini sína, markmið þeirra og aðstæður. Með aukinni þekkingu er auðveldara að uppfylla þarfir viðskiptavina og vernda gegn hugsanlegum auðkennisþjófnaði eða annarri misnotkun á þjónustu Lykils fjármögnunar.

Lykli fjármögnun, sem er hluti af Kviku banka hf., er auk þess skylt, á grundvelli laga nr. 140/2018, að búa yfir tilteknum upplýsingum um viðskiptavini sína og er óheimilt að framkvæma viðskipti eða eiga í viðskiptasambandi nema þær liggi fyrir. Þessar upplýsingar skipta máli í baráttunni gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og eru því stór þáttur í samfélagsábyrgð bankans.


Meðal upplýsinga sem við þurfum eru:
• Nafn og kennitala
• Heimilisfang
• Uppruni fjármuna
• Upplýsingar sem tengjast eðli og tilgangi viðskiptasambands